Oct
3
Kalli ofmetni
Kl. 18:04
Rakst á fyrirsögnina “Ingjbörg Þorbergs: Megas er snillingur” á vefsíðu Morgunblaðsins í dag. Pfffffffff. Þegar ég smellti á fréttina þá komst ég að því að Ingibjörg Þorbergs er eitthvað tónskáld sem skrifaði nokkurs konar aðdáunarbréf til Megasar sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins. Þetta bréf mætti túlka sem svar við umfjöllun Arnars Thoroddsen um Megas. Í þeirri umfjöllun talaði hann um að nokkrar af plötum Megasar væru ofmetnar. Mér finnst Arnar fara full varlega í málið, það má jú segja að þær séu ofmetnar… en ég held að “eins og úldinn fiskur” sé betri lýsing.
Oct
3
Aldeilis varð ég hlessa á að lesa ummæli alþingismanna á vefsíðu Morgunblaðsins í dag, þingmaður Framsóknarflokksins benti þar á að þeir hafi eytt atvinnuleysi á sínum tíma og formaður VG talandi um hagsýnar húsmæður? Þessar sömu þá og fylla Smáralindina alla daga vikunnar? Hvað kemur það annars málinu við? Af hverju getur hann líka aldrei komið neinum einasta hlut frá sér án þess að segja 5000 orð um hann í einhverjum fáránlegum rómantísk-þjóðsagnakenndum stíl? Tala minna og framkvæma meira dude.
En það er að hluta til rétt að frjálshyggjan sé að éta börnin sín, eða kannski meira; græðgin er að éta börnin sín. Hundrað milljarða hagnaður var ekki nóg. Tvö hundruð ekki heldur. Menn gátu einfaldlega ekki slakað á, sérstaklega ekki þegar þeir sáu hvernig væri hægt að græða pening á einfaldri pappírsvinnu á verðlausan pappír. Það sem fer mest í taugarnar á mér er að núna nærast vinstri menn og fleira lopapeysufólk á þessu hruni hagkerfisins, og vaða uppi og með fullyrðingar um að kapitalisminn hafi brugðist. Hmmm… já ok, en það var samt ekki alveg á eðlilegan hátt “siðfræðilega” séð… þetta var ekki kapitalismi í sinni tærustu mynd sem olli þessu ófremdarástandi. Málið er annars mjög einfalt. Það er ekki hægt að græða endalaust. Það er ekki hægt að borða endalaust. Það er ekki hægt að drekka endalaust. Það er bara ákveðið rými í boði hverju sinni. Það er ekki hægt að gera neitt endalaust. Græðgin varð okkur að falli.
Ron Paul minntist á það í viðtali við CNN að best væri að láta markaðinn laga þetta, þ.e. laga þær aðstæður sem hann sjálfur skapaði. Veit ekki með það, það er góð hugmynd en það gæti orðið blóðugt til lengri tíma. En Ron Paul er hugsjónamaður og frá hans sjónarhorni þá helgar tilgangurinn meðalið. Húsnæðisverð myndi lækka og þannig gæti fólk aftur keypt sér hús (í stað þess að halda verðinu uppi og halda áfram að láta banka lána grilljónir). Beilátið mun auðvitað halda verðinu uppi ef það gengur sem skildi en fólk getur aftur á móti fengið fjármagn lánað og hjólin fara að snúast á ný. En af hverju ættu bankarnir að gera það? Ég heyrði Limbaugh-inn einmitt tala um þetta, hvað ef þeir myndu bara frysta peninginn og sleppa því að lána hann út þar sem þeir vildu hafa einhverja tryggingu ef allt fer til andskotans? Það væri fáránlega slæmt. Skyndilausnin er að auka peningaflæðið, en spurningin er hvort það sé besta lausnin. Ég veit ekki hvað er best frekar en almennur bankastarfsmaður, en ég veit að eitthvað sem kallast trú (Bjarni?) getur gefið litlum gjaldmiðli eins og krónunni kraft. En jafnvel þó fólk hafi ekki trú á henni þá kemur hún til baka. Krónan er svolítið eins og Arsenal. Menn blaðra og blaðra og láta eins og heimsendir sé í nánd. Þeir tala um að okkur vanti hitt og þetta og allt sé vonlaust og Evran sé mikið betri kostur (Chelsea). En svo kemur sólin upp, liðið byrjar að spila sóknarfótbolta og allir segja þá að þetta sé nú kannski ekki svo slæmt.
Annars fór ég í laser tag í gær, í fyrsta skipti. Fyrst þegar laser tag ruddi sér til rúms þá hélt ég að það væri nú bara eitthvað bull. En þetta er helvíti gaman verð ég að segja. Við vorum sjö saman, og ég var í liðinu sem var einum manni færra en stóð samt uppi sem naumur sigurvegari, sem var mjög svo taktískur. Ég var skotinn gríðarlega oft í byrjun enda var þetta erfitt einum færri og ekki gerði það manni auðveldara fyrir að pleisið var á tveimur hæðum. En svo varð Jack reiður, sem var á sama tíma og Braveheart remix-ið var sett á fóninn. Ég kom samt ekki óskaddaður út úr þessu, því ég reif bolinn sem ég klæddist við upphandlegg, en ég man samt ekkert hvernig það gerðist.
Sep
30
Fyrsta golfholan
Kl. 07:30
Ég fór minn fyrsta golfhring í dag, en það var reyndar ekki í veruleikanum, heldur í draumi. Þetta er þróun sem þið munuð koma til að sjá hér, þ.e. ég mun slíta öllum tengslum við veruleikann og einungis blogga um drauma mína… sem hafa heldur betur verið að finna MSG-ið undanfarið.
Allavega, ég var í golfmóti. Það léku þrír saman í holli, og einhverjur tugir keppenda voru í spilinu, sem var einhvers konar elíta annaðhvort þeirra bestu eða þeirra sem voru þess verðugir að keppa (samkvæmt einhverjum samfélagslegum standard). Ég var í fyrrnefnda hópnum. Það var leikið upp á æruna, en einnig einhvern fjölda miða á íþróttakappleik um kvöldið.
Hefjast leikar þá og man ég ekki betur heldur en að völlurinn sem við vorum á hafi verið byggður fastur við hlið knattspyrnuleikvangi Man Utd en samt var hann staðsettur á einhverri Kyrrahafseyju, ekki slæm skipti fyrir Manchester borg. Ég gerði mig kláran fyrir venjulegan dag á skrifstofunni með tilvonandi kurteisihjali og leiðindum eins og gengur og gerist á PGA túrnum ef þið hafið fylgst með því. En það varð vonum framar þar sem ég og meðspilarar virtumst flestir vera á sömu blaðsíðu og náðum strax einhverjum óútskýranlegum tengslum við hvorn annan og skemmtum okkur konunglega.
![]()
Þessi hringur hjá okkur varð að hálfgerðum rokktónleikum frekar en golfleik alveg þangað til á þriðju holu því þá gerðist alveg fáránlegur atburður. Einn meðspilara minna (sem var náungi rétt yfir fertugt sem bæði bar nafn manns sem ég kannast við og var nauðalíkur honum, án þess þó að vera hann) gaf sjálfum sér circa 20cm pútt á einni holunni áður en ég púttaði. Ég spurði hann hvað í dauðanum hann væri að gera og þá kom:
“Hva, láttu ekki svona þetta var gefið”.
- “Vinur, þetta er atvinnumannamót, það eru engin pútt gefin”.
“Mér er alveg sama, þetta var gefið” (sá að hann var farinn að stressast)
- “Ég hefði gefið þetta, en þetta er brot á reglum kallinn”
“Hættu þessu væli”
- “Gleymdu því að þú komist upp með þetta, ég sé til þess að þér verði refsað”.
“Ég drep þig ef þú klagar mig”
Þegar hann hótaði að myrða mig þá hló ég að honum, og maðurinn gjörsamlega froðufelldi af reiði og þuldi upp fleiri hótanir í dágóða stund. Spennan í hollinu eftir á var slík að á milli þess sem við slógum teighöggin okkar þá voru tugir öryggisvarða á milli okkar, og í nokkur skipti reyndi hann að vaða í mig meðan ég mundaði dræverinn. Mér og hinum gaurnum í hollinu var farið að hætta að lítast á blikuna eftir nokkrar svoleiðis holur í viðbót og af hættu á að rekast á hann á golfbrautunum þá ákvað ég bara að dræva inn á grín í öllum upphafshöggunum þar eftir. Þannig að meðan hann var í bullinu úti í móa þá skokkaði ég alltaf áleiðis að gríninu.

Við tekur millbilsástand þar sem ég man ekki glóru, en ég man þó að ég sigraði mótið og gaurinn sem svindlaði fékk frávísun. Eftir það var ég allt í einu staddur inni á íþróttaleikvangingum, sem tók 100.000 manns í sæti. Ég hafði fengið miða fyrir mig og tvo vini mína í sigurlaun þannig að ég bauð þeim með mér. Gallinn var sá að á leikvanginum var aðeins einn inngangur að stúkunum og ég vissi að þau (kk + kvk) myndu tefjast. Leikurinn var byrjaður þegar völlurinn var ennþá hálf tómur þrátt fyrir að það væri sell-out þannig að ég áætlaði að það væru 50þús manns að reyna að troðast inn um einu hurðina til þess að komast upp í stúkurnar.
Á þessum tímapunkti er ég sjálfur staddur á vellinum og er að reyna að fylgjast með inngangnum og athuga hvort ég sjái þau ekki og allt í einu varð eins og þessi tiltekni inngangur væri orðinn miðpunktur athyglinnar, því leikurinn hafði stöðvaðist og allar myndavélar snéru nú að umræddum inngangi. Ákvað ég að reyna að píra augun og sjá hvort ég sæi þau ekki þarna einhvers staðar og viti menn, þá fattaði ég að ég gat *zoom-að með augunum á mér og þá sá ég þau fremst í troðningum en það var eins og einhvern bönd héldu þeim. Vissi ég ekki hvað ég ætti til bragðs að taka og í geðshræringu minni byrjaði ég að zoom-a inn og út á fullu og uppgötvaði þá að ég gat skipt um **sjónarhorn og sá þá sjálfan mig bregða fyrir í sekúndurbrot. Mér til mikillar furðu hékk ég í lausu lofti yfir miðjum vellinum (sem hlaut að vera miðað við öll sjónarhornin sem ég hafði) og var klæddur í röndótta peysu og hvítar buxur. Það vita flestir hvað það þýðir. Ég var hvorki meira né minna en dómari leiksins og minn fyrsti dómur var að dæma að vinir mínir kæmust inn á völlinn, svo leikurinn gæti byrjað að nýju.
*virðist hafa erft þennan eiginleika annars staðar frá
** sama og að ofan
Sep
28
Agaleg byrjun
Kl. 05:51
Jæja, fyrsti leikur í 7 manna Grand Strand deildinni er búinn. Og eins mikið og ég hata að vera 6-1 undir í fótboltaleik, þá er ég ekki viss um að ég hafi haft fulla meðvitund og var ansi feginn þegar dómarinn flautaði til leiksloka. Að minnsta kosti þrisvar sinnum var ég millimeter frá því að falla í yfirlið og æla um leið. Það er eitt ár síðan ég spilaði í takkaskóm á grasi, og ég var búinn að gleyma hvað það er vont að venjast því. Fyrstu dagarnir eru alltaf hrikalega erfiðir, allavega í mínu tilfelli. Í ofanálag var 28 stiga hiti og slatta raki (kláraði vatnið eftir upphitunina). Guð minn góður. Núna 10 tímum eftir leikinn er mér illt í hverjum einasta vöðvaþræði fyrir neðan mitti, og ég skelf. Völlurinn var eins þungur og þeir verða, ójafn og tættur. Ég verð samt að viðurkenna að það var ansi þægilegt að fara út í sundlaug eftir leikinn og leggjast til hinstu hvíldar.
Liðið sem við spiluðum við var að spila frekar vel en við vorum í algjöru bulli á löngum köflum. Þeir voru með boltann mest allan tíma leiksins en við vörðumst ágætlega enda læt ég enga pappakassa vera með showboat við mig. Okkar besta sókn var þegar ég byrjaði í vinstri bakverði, fíflaði tvo á leið upp vinstri kantinn, komst inn í vítateiginn og svo upp að endamörkum - sem voru mistök því þá sá ég mér til mikillar gremju var ég sá eini úr mínu liði sem var fyrir framan miðju. Það rann heldur betur út í sandinn. Já, það var betri sókn heldur en markið kom úr því stoðsendingin var útspark.
Núna taka við útihlaup í takkaskóm og fullum herklæðum. En djöfull er þetta gaman.
Sep
26
Snertimark eða touchdown?
Kl. 11:49
Mig langaði lengi til að verða íþróttafréttamaður. Ég spái reglulega í því ennþá og sé sjálfan mig stundum fyrir mér vera að lýsa enska boltanum og fleiru. Það eru hins vegar “barriers of entry” til að það gæti gerst:
Í fyrsta lagi hryllir mig við tilhugsuninni að vakna á köldum janúarmorgni og keyra upp á íþróttadeild til að fara að trakka niður alla íslenska íþróttamenn erlendis og sjá hvernig þeim gengur í sínu fagi. Að því loknu þarf ég að skoða úrslit í glímu og svo get ég farið út fyrir landsteinana, sem bjargar deginum algjörlega. En ég myndi bara ekki nenna að tala um sund eða handbolta alla daga, guð minn almáttugur.
Í öðru lagi eru það launin. Ekki að þau sé eitthvað slæm eða það sé ekki hægt að gera ágætis brauð úr þeim eða fara ýmsar leiðir, en þetta eru ekki milljónir dollara, sem eru kröfurnar.
Í þriðja lagi myndi ég krefjast þess að fá að lýsa enska boltanum á því tungumáli sem er mest viðeigandi. Þ.e.a.s. ég myndi vilja lýsa enska boltanum á ensku með annaðhvort breskri eða skoskri ensku as in “Thiegry angRy”. Lýsandi amerískum fótbolta er líka nauðsynlegt að mega segja “touchdown” og “fumble”. NBA sleppur á íslensku, Svali sannaði það (hann er samt sá einu sem má lýsa NBA á íslensku).
Fleira var það ekki.
Sep
20
Jokerinn er stolinn
Kl. 10:18
Nóg er nóg. Ég er kominn með ógeð af mbl.is. Þetta er agaleg fréttasíða. Er fólkið þarna að smyrja samlokur milli þess sem það kóperar helstu punkta úr fréttum héðan og þaðan og bullar svo eitthvað til að fylla inn í? T.d. eins og fréttin um samlokulistann hjá Nick Faldo. Ég get ekki betur séð en að það sé núna búið að edit-a fréttina þannig að núna meiki samlokulistinn sense. Mig minnir endilega að það hafi ekki fylgt sögunni fyrst hvernig samlokur ættu að tengjast málinu.
Það sem mér datt í hug fyrst var að skrifblokkinni sem hann hélt á væri líkt við samloku þar sem blöðin lægju ofan á hvert öðru eða þau væru brotin saman eins og samloka. Fáránlega langsótt, en það var það eina sem mér datt í hug. Svo sá ég þetta í sjónvarpinu seinna og sagði við sjálfan mig: “ég er, hálfviti”. Þið sem ekki fylgist með golfi getið lesið ykkur tel um þetta, það er nægt upplýsingaflæði á netinu.

SG? Sigurjón Guðjónsson?
Það sem ég sá líka í sjónvarpinu var að það var einhver náungi á áhorfendapöllunum á Yankee Stadium sem greip sitthvort home-runið tvo daga í röð. Hann mætti með hanska á pallana (það kalla ég dedication), stóð fremst og náði að grípa einn og tók svo einhvern dans í kjölfarið. Daginn eftir gerðist það aftur og hann tók dansinn aftur, á sama stað… allt eins (nema hann var í öðrum bol). Fáránlega fyndið.
En svo ég snúo mér aftur að Faldo, þá er hann slakur fyrirliði að mínu mati. Hann er bara ruglaður. Samlokulistinn var feitt klúður, en það er ekki aðalatriðið. Maðurinn virkar bara illa á mig. Ég geri mikið af því að hlusta á hann enda lýsir hann flestum PGA mótum og ekkert nema gott um það að segja en hann er ekki að gera sig sem fyrirliði Evrópu, þó hann sé töluvert skárri en hinn viðbjóðslega smeðjulegi fyrirliði Bandaríkjamanna.
Það er óásættanlegt að Bandaríkin séu að vinna Ryderinn. Það lekur ostur út um allt þarna! Ég vil að mínir menn sýni tennurnar á morgun. En ég er ansi hræddur um að þó að fyrirliðinn skipti ekki öllu máli, að þá sé Faldo bara ekki með´etta og Bandaríkin muni sigra að lokum. Hann er svona Joker gaur sem er alltaf voða hress og alltaf með brandara o.s.frv. en ég treysti honum ekki frekar en ég treysti Jokernum.

Talandi um Jokerinn. Ég er með kenningu. Heath Ledger-Jokerinn er ein magnaðasta persóna sem ég hef séð á hvíta tjaldinu, ásamt nokkruð öðrum, þar með talið “Daphne” í Some Like it Hot (sem er leikin/n af Jack Lemon). Kenningin er sú að Jokerinn í The Black Knight er eftirherma Jack Lemon í Some Like it Hot. Það koma augnablik þar sem sami munnsvipurinn (sem er horror) og sömu taktarnir eiga sér stað.
Það er skuggalegt að horfa á sum atriðin í Some Like it Hot, því “Daphne” kemur með moment þar sem ég gæti alveg eins verið að horfa á The Dark Knight (fyrir utan að Joker er vondur gaur en Daphne er karlmaður klæddur í kvenmannsföt). En þó að Daphne sé allt öðruvísi karakter þá er hann samt alveg semi-klikkaður og ekki beint kvenlegur. Þess vegna skildi ég ekki af hverju stelpurnar föttuðu ekki að þetta var í raun karlmaður? Þær hljóta að hafa verið heimskar eða eitthvað???? En heilt yfir er Daphne kannski ekkert ógurlega lík/ur Joker þannig lagað, enda er það enginn, en eins og ég sagði þá koma moment þar sem maður frystir myndina og smellir fingri “Hey! þetta er Jokerinn”. Þannig að Jokerinn er stolinn. Þar hafið þið það.
Sep
16
1. spurning:
Er hægt að rækta allt lífrænt?
Sep
13
ESPN360
Kl. 08:55
Hvaða bavíani byrjaði á því að setja platskúffur í innréttingar? Þegar ég tala um platskúffur þá meina ég þegar eitthvað lítur út fyrir að vera skúffa, en þegar maður ætlar að opna hana og athuga hvað er eiginlega í henni þá haggast hún ekki, og er bara plat. Af hverju ekki að hækka bara skápahurðina eða sleppa því að hafa eitthvað fyrir ofan hana? Það er hvort sem er ekkert á bakvið frontinn á skúffunni. Fáránleikinn við þetta vegur þyngra heldur en útlitskostirnir, sérstaklega ef um innréttingu er að ræða sem inniheldur einungis platskúffur.
En það er ekki mál málanna í dag. Mál málanna er ESPN360 þjónustan hjá bandaríska íþróttafjölmiðlinum ESPN. Þessi þjónusta gerir notendum kleift að horfa á íþróttir í gegnum sérstakan video-spilara sem maður opnar í gegnum vafrann í tölvunni sinni, nú eða tölvu félagans eða jafnvel makans, allt eftir því í hvaða aðstæðum maður er.
Það besta er þetta er frítt… eða kannski meira “frítt”. Það er nefninlega ný tilkomið að sauðirnir sem ég versla internetið af fylgdu í fótspor margra annarra netveitna og keyptu þjónustuna fyrir sína viðskiptavini og hún fylgir því með netinu. Einnig er þetta frítt á öllum háskólanetum landsins.

Ég hefi heyrt og lesið að þessi þjónusta sé fáanleg í Evrópu gegn gjaldi, þannig að það er spurning hvort hún fáist á Íslandi.. getur einhver svarað því? Ég trúi jafnframt ekki að ef svo er að hún fáist, að mánaðargjaldið sé meira en helmingi minna en af Stöð 2 Sport, og það eina sem Stöð 2 Sport hefur fram yfir ESPN360 er að þeir sýna enska boltann, því ESPN360 sýna meðal annars undankeppni HM í fótbolta, Meistaradeildina, NBA, og US Masters og U.S. Open í golfi og flest af því í meira magni (sumt af þessu er í HD í þokkabót - og trúið mér HD í gegnum netið er betra heldur en standard sjónvarpsútsending í meðal sjónvarpi, sérstaklega hljóðið). Og eitt það besta við þetta allt saman er að gamlir leikir eru settir í “skjalasafn” þannig að það er hægt að horfa á þá mörgum dögum seinna og spóla fram og til baka að vild. Ég kíkti t.d. á Aston Villa - FH um daginn, en þurfti þó frá að hverfa sökum depurðar.
Svo er annað við þessa þjónustu sem er ansi almennilegt og það er að það er hægt að horfa á nokkra glugga í einu neðst á skjánum. Það má því segja að ESPN360 sé eins og konfektkassi, þar sem það er búið að skera alla molanna til helminga, og þannig veit maður alltaf hvað maður er að fara að bíta í.
Sep
9
Næturmeri (uppfyllingarefni)
Kl. 06:17
Fyrsta martröð haustsins kemur óvenju snemma, og hún var óvenju erfið. Hér er atburðarásin:
1. Portsmouth varð ríkasta lið heims og keyptu til sín alla knattspyrnustjóra topp 4 liðanna í ensku deildinni. Það var mikið um persónugervingar í þessum draumi því stjórarnir í þessu tilviki voru hvorki meira né minna en hjólbarðar. Allt í einu stóðu Arsenal eftir með engin dekk, en Man Utd voru bara dekkjalausir að framan, meðan Portsmouth voru komnir með varadekk allan hringinn. Ég býst við að fjöldi eftirstandandi dekkja hafi verið til að sýna mikilvægi stjórans hjá viðkomandi liði, þ.e. Man Utd mátti meira við því að missa sinn stjóra. Skömmu seinna voru þau öll þó komin með ný dekk undir, en þegar ég skoðaði verðmiðana á dekkjunum þá voru Arsenal með ódýrustu dekkin og Chelsea voru með þau dýrustu. Ég þreifaði aðeins á dekkjunum hjá Man Utd og Arsenal og þau hjá Man Utd voru ekkert spes, en dekkin hjá Arsenal voru svo til slétt. Hvað þýðir þetta?
—
2. Eitt mitt versta moment sem ég man eftir. Er staddur í heimsókn í kjallaraíbúð í Austurbergi (eru hún til?) og þegar allt nammið í húsinu kláraðist, þá bauðst ég til að fara út í sjoppu og sækja meira. Draugar fortíðar og ófreskjur framtíðar ásóttu mig allan tímann meðan ég reyndi að komast klakklaust út í sjoppu. Meðan draugar fortíðar reyndu að draga mig niður í svaðið til sín þá reyndu fulltrúar framtíðarinnar að toga mig áfram út í einhverja vitleysu, þannig að ég missti jafn og þétt þrek. Ekki bætti úr skák að ég óvart myrti einhvern náunga á leiðinni (í sjálfsvörn), og þurfti því að reyna að hylja slóð mína í alblóðugum snjónum ásamt því að berjast við þessi öfl.
Þegar ég loks komst aðframkominn út í sjoppu þá var ekkert til þannig að annaðhvort þurfti ég að fara til baka tómhentur eða hætta lífi mínu og fara í matvörubúð (í þessu tilfelli var hún stödd á hliðarvegg Hólabrekkuskóla). Seinni valkosturinn var tekinn en um leið og ég lagði af stað þá byrjuðu tennurnar á mér að losna jafnt og þétt og á endanum var ég orðinn alveg tannlaus vinstra megin í munninum. Ég hrækti út úr mér tönnunum einni í einu meðan ég losaði þær með tungunni, og það fossblæddi úr mér. Ég gat ekki látið sjá mig tannlausann í matvörubúð þannig að ég beilaði og ætlaði að stinga af. Hvað þýðir þetta?
—
3. Hér er ég í beinu framhaldi af flóttaplönum mínum staddur í strætisvagni sem var mér til mikillar skelfingar á leið til Hafnarfjarðar. Þegar maður er á rangri leið er best að drulla sér út strax þannig að ég reyndi að komast að stop takkanum en í sama mund hófust stympingar í vagninum - þannig að til að ná stjórn á mannskapnum þá ákvað bílstjórinn gefa í og sikk-sakka sem alveg þrælvirkaði. Ætla að gera það næst þegar menn eru með læti í aftursætinu. Þetta kostuði mig þó tvær stoppistöðvar og það var bara ein eftir áður en vagninn héldi áfram á endastöðina sem var Keflavíkurflugvöllur.
Þegar ég var að gera mig klárann að yfirgefa vagninn þá tók ég eftir því að kallinn hægði ekkert á sér og allt í einu vorum við komin framhjá henni. Þá spurði ég kallinn hvort hann ætlaði ekkert að stoppa. “Hah! Stoppa? Hefurðu kíkt út, eða réttara sagt niður?”. Eftir að hafa kíkt út þá fékk ég næstum áfall af hræðslu því við vorum í lausu lofti í amk 2000feta hæð. En hvernig mátti það vera? Jú þá tók ég eftir því að við vorum að ferðast eftir línum eins og vagn í ítölsku ölpunum. Það er nægur hryllingur að hrapa einn til jarðar, en í strætó fullum af fólki er það líklega verra. Það byrjuðu allir að öskra, sem fékk bílstjórann til að öskra líka, og þá öskruðu hinir meira og hoppuðu af geðshræringu þannig að línan svignaði ítrekað mjög nálægt slitmörkum að mér fannst, og ég var þess fullviss að þetta væri mitt síðasta. Við náðum þó upp á fjalltopinn skömmu síðar og restin var eiginlega ganga í garðinum. Ég áttaði mig líka á því að ég átti pantað flug kl 6 morguninn eftir þannig að kannski væri þetta ekki svo slæmt, en ég læt samt sækja mig og fór aftur til Rvk. Hvað þýðir þetta? Hvar er Freud núna?
Sep
5
Sýning
Kl. 23:38
Hey, ég fékk afslátt í búð í gær af því að ég var með White Sox húfu.
Annars kom ég hingað til að hvetja fólk að fara á þessa sýningu (sjá að neðanverðu) ef það hefur áhuga á listum, sem flestir lesendur ættu eflaust að hafa. Ég myndi auðvitað fara sjálfur ef ég kæmist. Meira hér.
